Útskrift stúdenta vorið 2010
31.05.2010
Föstudaginn 28. maí var myndarlegur hópur stúdenta útskrifaður frá Kvennaskólanum við hátíðlega athöfn í Hallgrímskirkju. Kór Kvennaskólans söng og útskriftarnemendur glöddu gesti með tónlistaratriðum því að Erna Agnes Sigurgeirsdóttir 4T söng einsöng og Börkur Smári Kristinsson 4NS lék á gítar. Árni Þórólfur Árnason, fráfarandi formaður nemendafélagsins Keðjunnar, flutti ávarp fyrir hönd nýstúdenta. Ragnheiður Heiðreksdóttir íslenskukennari var heiðruð en hún lætur nú af störfum eftir áratuga farsælan feril í Kvennaskólanum.
Fjölmargir nemendur hlutu verðlaun fyrir góðan námsárangur í hinum ýmsu greinum ásamt því sem nokkrir nemendur hlutu viðurkenningu fyrir framlag sitt til félagsmála nemenda.
Dúx skólans á stúdentsprófi varð Ólafur Páll Geirsson 4NS með meðaleinkunnina 9,23 og tveir aðrir nemendur, einnig úr 4NS, Nína Aradóttir og Guðmundur Már Gunnarsson hlutu einnig ágætiseinkunn á stúdentsprófi.
Nokkrir fulltrúar afmælisárganga skólans voru viðstaddir. Fyrir hönd 65 ára afmælisárgangsins talaði Salome Þorkelsdóttir og færðu þær skólanum bókina Jöklar á Íslandi.
Ingibjörg Guðmundsdóttir skólameistari lýsti að lokum skólaárinu 2009-2010 formlega lokið og síðan var öllum boðið til kaffisamsætis við Fríkirkjuveg 9.
Til baka