Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Vinningshafar - Ríki 2023

Helstu niðurstöður

Stofnanir ársins eru þrjár: Fjölbrautaskóli Suðurnesja er sigurvegari í flokki stærri stofnana. Þjóðskrá Íslands er sigurvegari í flokki meðalstórra stofnana og Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum bar sigur úr býtum í flokki minni stofnananna.

Val á stofnun ársins fer þannig fram að valin er stofnun með hæstu heildareinkunn sem uppfyllir þátttökuskilyrði úr þremur stærðarflokkum og bera þessar þrjár stofnanir heitið „Stofnun ársins“. Stærðarflokkarnir eru; stofnanir með færri en 40 starfsmenn, stofnanir með 40-89 starfsmenn og stofnanir með 90 eða fleiri starfsmenn.

Fyrirmyndarstofnanir

Í hverjum stærðarflokki hljóta efstu fimm stofnanirnar sæmdarheitið Fyrirmyndarstofnanir. Framhaldsskólarnir eru áberandi í efstu sætum á lista stórra stofnana. Fjölbrautaskóli Suðurnesja er sigurvegari stórra stofnana, hann var einnig sigurvegari fyrir ári. Vínbúðin er í öðru sæti stórra stofnana, líkt og í fyrra. Í þriðja sæti er Fjölbrautarskólinn við Ármúla, líkt og í fyrra. Fjármála- og efnahagsráðuneytið vermir fjórða sæti listans, líkt og í fyrra. Í fimmta sæti er svo HMS eða Húsnæðis- og mannvirkjastofnun en stofnunin var í 12. sæti í fyrra. Í heildina eru því litlar breytingar á efstu sætum listans frá síðasta ári.

Fyrirmyndarstofnanir (90 starfsmenn og fleiri)
1. Fjölbrautaskóli Suðurnesja
2. Vínbúðin - ÁTVR
3. Fjölbrautskólinn við Ármúla
4. Fjármála- og efnahagsráðuneytið
5. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Í flokki meðalstórra stofnana er sigurvegarinn Þjóðskrá Íslands, en hún var í öðru sæti í fyrra þegar hún tók risastök frá árinu áður. Menntaskólinn á Ísafirði er í öðru sæti, en skólinn var hástökkvarinn í fyrra. Menntaskólinn á Egilsstöðum er svo í þriðja sæti, en hann var í fyrsta sæti í fyrra. Í fjórða sæti er Kvennaskólinn, en hann var í áttunda sæti í fyrra. Í fimmta sæti er Ríkisendurskoðun, en hún var í fjórða sæti fyrir ári síðan og í öðru sæti árið þar
á undan

Fyrirmyndarstofnanir (40-89 starfsmenn)
1. Þjóðskrá Íslands
2. Menntaskólinn á Ísafirði
3. Menntaskólinn á Egilsstöðum
4. Kvennaskólinn í Reykjavík
5. Ríkisendurskoðun

Í flokki minnstu stofnananna er sigurvegarinn Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum sem einnig var í efsta sæti í fyrra og vermdi annað sætið árið þar á undan. Menntaskólinn á Tröllaskaga vermir annað sætið, eins og í fyrra. Báðir skólarnir hafa verið ofarlega á lista árum saman. Í þriðja sæti er svo Jafnréttisstofa, eins og í fyrra. Landmælingar Íslands eru svo í fjórða sæti, en stofnunin var í tíunda sæti í fyrra. Í fimmta sætinu er svo Kvikmyndasafn Íslands, líkt og í fyrra. Listi yfir fyrirmyndarstofnanir hefur því lítið breyst frá síðasta ári.

Fyrirmyndarstofnanir (færri en 40 starfsmenn)
1. Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum
2. Menntaskólinn á Tröllaskaga
3. Jafnréttisstofa
4. Landmælingar Íslands
5. Kvikmyndasafn Íslands

Hástökkvari ríkisstofnana

Hvaða stofnun stekkur hæst? Hástökkvari ríkisstofnanna árið 2023 er Hugverkastofan. Við útreikning á hástökkvurum er fyrst reiknuð
raðeinkunn fyrir allar stofnanir á bilinu 1-100 og svo er reiknaður munur á raðeinkunn milli ára. Hugverkastofan stekkur hæst allra, eða um 69 sæti. Þá er átt við sæti á raðeinkunninni.

 

Hér má nálgast heildarlista fyrir stofnanir ríkisins.

Sameyki óskar starfsfólki og stjórnendum þessara stofnana innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur og óskar þeim alls hins besta í framtíðinni.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)