Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: Engar
Áfanginn fjallar um geðheilsu og geðræn vandamál. Fjallað er um almennt geðheilbrigði og geðrækt bæði út frá sálfræðilegum kenningum og læknisfræðilega líkaninu. Lögð er áhersla á að nemendur átti sig á samspili líkamlegra og andlegra þátta í tengslum við geðheilbrigði og þróun geðraskana. Nemendur kynnast leiðum til að verjast streitu og taka á afleiðingum hennar. Einnig er fjallað um ýmsar geðraskanir og helstu meðferðarúrræði við þeim. Nemendur afla sér upplýsinga um geðheilsugæslu og þá meðferð sem er í boði á Íslandi. Meginmarkmið áfangans er að nemendur öðlist skilning á geðheilsu, geðrækt og eðli geðraskana svo þeir skilji hvernig þeir geta tekið ábyrgð á eigin geðheilbrigði.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu geðröskunum, ásamt orsökum og meðferðarúrræðum
- hvað sé góð geðheilsa og hvernig maður geti lagt sitt af mörkum til að öðlast hana
- helstu stefnum innan sálfræðinnar og geti borið þær saman við liffræðina
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- afla upplýsinga, greina þær og setja í fræðilegt samhengi
- nýta fræðilegan texta á íslensku og erlendu tungumáli
- miðla fræðilegu efni skýrt og skilmerkilega í ræðu og riti
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta rætt um geðraskanir af skilningi og virðingu
- vinna úr rannsóknargögnum og leggja á þau mat
- sýna frumkvæði að raunhæfum lausnum
- beita skapandi hugsun við lausnamiðað nám
- meta eigin frammistöðu og annarra á gagnrýninn hátt
- geta tekið þátt í rökræðum um málefni sem tengjast sálfræðinni.
Nánari upplýsingar á námskrá.is