Innritun

Kvennaskólinn notar sameiginlegt innritunarkerfi fyrir framhaldsskóla sem ráðuneyti rekur. Skólinn innritar nemendur að vori. Samkvæmt reglugerð nr. 204/2012 á að leggja eftirfarandi forgangsröðun umsókna til grundvallar við innritun:

  • Nemendur sem flytjast milli anna eða skólaára í núverandi skóla að meðtöldum þeim nemendum yngri en 18 ára með ófullnægjandi námsárangur sem hafa haldið skólareglur að öðru leyti
  • Nemendur á starfsbraut fatlaðra
  • Nýnemar sem útskrifast úr grunnskóla á næstliðnu vori fyrir upphaf skólaárs
  • Umsækjendur yngri en 18 ára sem eru að sækja um í fyrsta sinn
  • Umsækjendur yngri en 18 ára sem eru að sækja um eftir hlé á námi
  • Umsækjendur yngri en 18 ára sem flytjast milli framhaldsskóla
  • Aðrir umsækjendur yngri en 25 ára sem uppfylla skilyrði
  • Aðrir umsækjendur um dagskóla
  • Umsækjendur um fjarnám eða kvöldskóla*


Þeir sem eru yngri en 18 ára njóta forgangs fram yfir þá sem eldri eru og þeir sem hafa hætt námi við skólann eða gert hlé á námi sínu njóta forgangs að lausum plássum í efri bekkjum skólans

Umsóknir eldri nemenda: Miðstöð menntunar og skólaþjónustu auglýsir hvenær innritun eldri nema fer fram. Hver umsókn er skoðuð sérstaklega og áskilur skólinn sér rétt til að velja úr umsóknum miðað við rými á námsbrautum og bekkjum og hvernig námsferlar umsækjenda passa inn í laus pláss í skólanum.