Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ÍSLE2MN05
Markmið áfangans er að skoða, ræða og greina íslenska menningu og samfélag allt frá eftirstríðsárunum svonefndu fram til dagsins í dag í gegnum valdar íslenskar kvikmyndir. Um leið og skoðað verður það samfélagsmynstur sem kemur fram í þeim myndum sem horft verður á greinum við þau gildi, hefðir og skoðanir sem lesa má út úr þeim. Íslensk menning er því útgangspunkturinn í því sem við vinnum í sambandi við þær myndir sem verða sýndar verða í áfanganum.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grundvallarþróun íslensks samfélags og menningar frá eftirstríðarárum til dagsins í dag samkvæmt því sem hægt er að meta hana út frá þeim kvikmyndum sem sýndar eru
- skoðunum, hefðum og gildum sem koma fram í þeim kvikmyndum sem sýndar eru í áfanganum
- skoðunum, hefðum og gildum þeirrar samfélagssýnar sem birtast í ákveðnum kvikmyndunum sem sýndar eru í áfanganum
- leikstjórum og helstu leikurum þeirra mynda sem sýndar eru
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- ritun ritgerða þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun og kemur skoðunum sínum á framfæri á skýran og greinargóðan hátt
- draga saman og nýta upplýsingar úr ýmiss konar heimildum og flétta saman við eigin viðhorf og ályktanir á heiðarlegan hátt
- að flytja af nokkru öryggi ræður, endursagnir, lýsingar og kynningar á tileknum málefnum
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- beita skýru og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
- taka þátt í málefnalegum umræðum, byggja upp skýra röksemdafærslu, tjá afstöðu og efasemdir um efnið og komast að niðurstöðu
- draga saman aðalatriði, beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta, átta sig á samfélagslegum skírskotunum
- túlka efnið þó merkingin liggi ekki á yfirborðinu
Nánari upplýsingar á námskrá.is