Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: TÖLF2FG05
Framhaldsáfangi í forritun þar sem nemendur fá að kynnast fleiri hugtökum í forritun með því forritunarmáli sem kynnt var í TÖLF2FG05. Fjallað er um hluti eins og klasa og hlutbundna forritun ásamt því sem farið verður í undirstöður hönnunar og þróunar hugbúnaðar. Einnig verður fjallað um endurkvæmni (e. recursion) í forritun.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu hugtökum varðandi þróun hugbúnaðar
- heildar uppbyggingu eins æðra forritunarmáls
- endurkvæmni í forritun
- öllum grunneiningum forritunarmáls
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skrifa flóknari keyrsluforrit
- nota allar helstu gagnaskipanir forritunarmálsins
- hanna og þróa stærri forritunarverkefni
- lesa kóða
- aflúsa, breyta og prófa stærri forrit
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- leiðrétta og endurbæta forrit
- semja forrit til að leysa flókin verkefni
- þróa og hanna stærri forrit
- beita gagnrýni og skapandi hugsun við lausnir verkefna
- skilja og beita einföldum röksemdum
Nánari upplýsingar á námskrá.is