Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Forkröfur: HEIL1HG01
Áfanginn byggist upp á frekari þjálfun í alhliða líkams- og heilsurækt. Farið er yfir mismunandi þjálfunaráhrif og mikilvægi allra þátta fyrir bættri heilsu og heilbrigði. Verkefnavinna byggist á hvatningu til að efla andlega, líkamlega- og félagslega vellíðan til framtíðar. Námið er í formi staðkennslu og vendikennslu.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- uppbyggingu og eðli snerpu- og hraðaþjálfunar, samhæfingu og tækni
- fjölbreytni allra þátta til eflingar líkama og heilsu
- forsendum og áhrifum þjálfunar fyrrnefndra þátta á líkama og heilsu
- neikvæðum áhrifum ávana- og vímuefna á líkamann
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- taka þátt í almennri og sérhæfðri þjálfun
- tileinka sér fjölbreytta þjálfun allra þátta
- geta útskýrt eðli og hugtök sem tengjast snerpu- og hraðaþjálfun, samhæfingu og tækni
- taka þátt í æfingum, leikjum og hreyfingu sem stuðla að bættri líkamsbeitingu og jákvæðari upplifun og viðhorfi til líkams- og heilsuræktar
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skipuleggja og leysa af hendi verkefni sem snúa að eigin heilsueflingu
- leysa af hendi æfingar og leiki sem viðhalda og bæta líkamlega-, andlega og félagslega þætti
- mæla og meta eigið líkamsþrek
- taka þátt í umræðum um ávana- og fíkniefni
Nánari upplýsingar á námskrá.is