Einingafjöldi: 1
Þrep: 2
Forkröfur: HEIL2HH01
Í áfanganum er lögð áhersla á: Mikilvægi næringar, heildræna heilsu, líkamsrækt, orkuþörf líkamans og íþróttasálfræði. Námið fer fram í staðkennslu, vendikennslu og verkefnum utan skólans þar sem lögð er áhersla á að nemendum vinni með fræðilegt efni áfangans á raunhæfan hátt.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mikilvægi næringar fyrir heilsu, heilbrigði og vellíðan
- helstu flokkum næringaefna og viðeigandi orkuneyslu
- útskýrt mikilvægi svefns, hvíldar og endurheimtar í samhengi við heilsu og árangur
- geta útskýrt hvað felst í íþróttasálfræði og meginviðfangsefnum hennar
- geta útskýrt hvað líkamsmat/próf eru og tilgang þeirra
- fjölbreyttum leiðum til að nýta likams- og heilsurækt í daglegu lífi
- möguleikum í umhverfi og náttúru til líkams- og heilsuræktar
- neikæðum áhrifum áfengis-, tóbaks- og lyfjaneyslu á líkama og heilsu
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- tileinka sér hollt og fjölbreytt matarræði
- lesa og skilja upplýsingar um næringu og næringarfræði
- áætla eigin orkuþörf
- stunda líkams- og heilsurækt á heilbrigðan hátt
- nota íþróttasálfræði til að efla eigin áhugahvöt
- nota fjölbreyttar aðferðir til að mæla líkamsástand (þol, styrk, liðleika og púls)
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- leysa af hendi verkefni sem snúa að skipulagi á næringarinntöku
- mæla og meta eigin styrkleika í líkams- og heilsurækt
- taka þátt í umræðu sem snýr að næringu, matarræði, andlegri vellíðan og mælingum á líkamsþreki
- takast á við áskoranir daglegs lífs varðandi matarræði og lifnaðarhætti
Nánari upplýsingar á námskrá.is