Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ENSK2UK05
Námskeiðið byggir á völdum verkum úr smiðju J.R.R. Tolkien. Unnið verður með texta Tolkiens, bæði skáldaðan og einkabréf sem hafa verið birt að honum látnum. Verk sem Tolkien horfði til í skáldsköpun sinni verða kynnt og nemendur kynna sér einnig bakgrunn og bera saman verur sem Tolkien skóp við það sem hafði áður birst í bókmenntaverkum. Einnig verður fjallað um túlkun verka Tolkiens í kvikmyndum Peter Jacksons. Kröfur áfangans samsvara hæfnisþrepi C1 í Evrópska tungumálarammanum (CEFRL).
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hvernig Tolkien skapaði söguheim sinn
- rithöfundinum J.R.R. Tolkien og bakgrunni hans
- uppsprettum hugmynda og tungumáls Tolkiens
- áhrifum Tolkiens á bókmenntir og kvikmyndir síðustu áratuga
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- tengja söguheim og persónur Tolkiens í samhengi við raunheim
- greina stíl Tolkiens og málsköpun
- greina samhengi verka Tolkiens við sögu og samfélag 20. aldarinnar
- greina gildi verka Tolkiens fyrir samtímamenn hans og seinni kynslóðir
- fjalla um verk Tolkiens og túlkun annarra á þeim á gagnrýninn og fræðilegan hátt
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- rita texta sem uppfyllir lágmarkskröfur um fræðilegan orðaforða
- afla sér fræðilegra heimilda á gagnrýninn hátt
- setja fram umfjöllun, munnlega og skriflega, þar sem dregin eru fram aðalatriði og rökstuðningur með nokkuð nákvæmum dæmum
- taka þátt í skapandi og fræðilegum umræðum um Tolkien og verk hans.
Nánari upplýsingar á námskrá.is