Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Til grundvallar liggja 5 efnisflokkar og miðað er við að kennari velji a.m.k. 4 þeirra til umfjöllunar. Efnisflokkarnir eru: upphaf mannsins og þróun, fornaldarríki (2-3 ríki fornaldar skoðuð), trúarbrögð (ríkjandi trúarbrögð á fornöld kynnt), landafundir/siðskipti (skoðaðar helstu breytingar sem urðu í heiminum um 1500), upphaf nútímaþjóðfélags (upplýsing, iðnbylting, lýðræðisþróun). Markvisst er unnið að því að kynna fyrir nemendum mismunandi tegundir heimilda og þjálfa þá í notkun þeirra og einfaldri framsetningu efnis. Lögð er áhersla á að sýna fram á hvernig sagan birtist nemendum í nútímanum.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- völdum þáttum úr sögu mannkyns frá upphafi til nýaldar
- algengum hugtökum sem höfð eru um fyrirbæri sögunnar
- því að sjálfsmynd einstaklinga og hópa mótast af sögunni
- mikilvægi gagnrýninnar hugsunar
- tegundum heimilda og helstu vinnubrögðum við heimildaleit og heimildanotkun
- tengslum fortíðar og nútíðar
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa einfalda sagnfræðilega texta á íslensku
- tengja samtíðaratburði við það sem áður hefur gerst
- nota a.m.k. tvær gerðir heimilda við verkefnavinnu
- taka saman skriflega stutta umfjöllun um afmarkað sögulegt efni og kynna fyrir jafningjum
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- setja sjálfan sig í samhengi sögunnar sem þátttakandi og skoðandi
- geta sett sig í spor fólks á ýmsum tímum
- geta tekið þátt í skoðanaskiptum og rökræðum með jafningjum um sagnfræðileg efni sem tekin eru fyrir í áfanganum
Nánari upplýsingar á námskrá.is