Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: SAGA2MN05 eða sambærilegur söguáfangi á 2. þrepi.
Áfanginn byggir að talsverðu leyti á sjálfstæðum vinnubrögðum nemenda, heimildaleit, verkefnavinnu, úrvinnslu og framsetningu efnis. Nútímamenning, upphaf, þróun og staða nútímamenningar, sérstaklega vestrænnar menningar er í forgrunni. Upphaf menningar fornaldar, sérstaklega þeirra ríkja sem liggja nærri Miðjarðarhafi er m.a. skoðað. Megináherslan er þó ekki á fornaldarmenningu sem slíka, heldur á tengsl hennar við vestræna menningu og trúarbrögð frá fornöld og til dagsins í dag. Ólíkir þættir nútímamenningar eru teknir fyrir, s.s. listir almennt, leiklist, höggmyndalist, byggingarlist, málaralist, ólík fræði, s.s. raunvísindi, hugvísindi og tungumál, trúarhugmyndir/goðsögur og bókmenntaverk.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- aðgreiningu menningarhugtaksins í hlutlæga og huglæga menningu
- aðgreiningu í leifar og frásagnir
- helstu forsendum borgarmenningar
- ólíkum sviðum menningar og tengsl þeirra við upphaf sitt
- framlagi ólíkra menningarheilda til nútímamenningar
- menningarframlagi ólíkra menningarsvæða
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- leggja gagnrýnið mat á menningarhugtakið hvað varðar svokallaða lág- og hámenningu
- leita heimilda varðandi ólíkar menningarheildir
- meta fjarlæg og nálæg samfélög með menningarlegum samanburði
- afla upplýsinga, greina þær og setja í fræðilegt samhengi
- meta menningarframlag ólíkra menningarsvæða til skilnings á nútímasamfélagi
- nýta fræðilegan texta á íslensku og erlendu tungumáli
- miðla skýrt og skilmerkilega fræðilegu efni í ræðu og riti
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- bera saman ólíkar menningarheildir
- yfirfæra þekkingu sína á einu sviði yfir á annað
- meta menningarframlag ólíkra menningarsvæða á hlutlægan hátt
- geta ályktað út frá einu sviði menningar yfir á annað án þess að fá bein fyrirmæli um hvernig það skuli gert
Nánari upplýsingar á námskrá.is