Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: FRAN1FB05
Viðfangsefni undanfaranna eru rifjuð upp og sett í nýtt samhengi. Áfram er unnið að aukinni færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun. Textar verða smám saman lengri og þyngri. Orðaforði er aukinn og nemendur þjálfast í nýjum málfræðiatriðum. Samhliða vinnu með aðalkennslubók vinna nemendur með fjölbreytt efni úr ýmsum áttum og auk þess einfalda skáldsögu og leysa ýmis verkefni út frá henni. Lýsingar á staðháttum, bæði í frönskumælandi löndum og á Íslandi koma við sögu. Hvatt er til aukins sjálfstæðis nemenda í vinnubrögðum og að þau nýti sér ýmis hjálpargögn, s.s. orðabækur, málfræðibækur og netið við upplýsingasöfnun.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
- grundvallarþáttum franska málkerfisins
- frönskumælandi löndum og fengið aukna innsýn í menningu, helstu samskiptavenjur og siði þjóðanna
- einföldum samskiptum og tjáningu í mæltu og rituðu máli, þ.m.t. formgerð og byggingu texta og vera meðvitaðri en áður um muninn á þessum málsniðum
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- fylgjast með frásögnum eða samtölum um almenn efni eða sérhæfðari málefni sem nemandi þekkir þar sem talað er skýrt og áheyrilega
- skilja texta um almennt og sérhæfðara efni sem fjallað er um í áfanganum og beita viðeigandi aðferðum eftir því hver tilgangurinn er með lestrinum hverju sinni
- fylgja söguþræði í einföldum eða einfölduðum bókmenntatextum
- taka þátt í almennum samræðum um kunnugleg efni og beita kurteisisvenjum, málvenjum og hljómfalli við hæfi
- segja frá á skýran hátt og halda stutta kynningu á undirbúnu efni með því að beita orðaforða, setningagerð og framburði á sem réttastan hátt
- skrifa samfelldan texta um ýmis efni sem unnið er með í áfanganum, t.d. lýsingar á stöðum og umhverfi og geta betur en áður dregið ályktanir og tjáð eigin skoðanir
- nýta sér ýmis hjálpargögn í frönskunáminu
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- fylgjast með frásögnum og ná aðalatriðum úr fjöl- og myndmiðlum ef efnið er mjög kunnuglegt
- afla sér ýmissa upplýsinga úr mæltu máli, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér í námi og starfi
- tileinka sér aðalatriðin í stuttum og/eða einföldum rauntextum af ýmsu tagi
- lesa skáldskap af hæfilegu þyngdarstigi og tjá skoðun sína
- takast á við flestar algengar aðstæður í almennum samskiptum og geta almennt bjargað sér á málinu
- segja frá eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu og áætlunum
- miðla á einfaldan hátt efni, bæði munnlega og skriflega
Nánari upplýsingar á námskrá.is