Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: FRAN2YF03/05 eða staðgóð frönskuþekking, t.d. vegna búsetu í frönskumælandi landi
Meginmarkmið áfangans er að nemendur lesi rauntexta á frönsku sér til ánægju og gangs og þjálfist í að nota tungumálið til að tala um efni sem þau hafa lesið og kynnt sér. Nemendur lesa ýmiss konar texta, svo sem skáldsögur, smásögur, tímaritsgreinar og fræðsluefni á netinu. Nemendur velja að stórum hluta það efni sem þau vinna með. Nemendur vinna sjálfstætt með textann hverju sinni og kynna niðurstöður í viðtali við kennara. Einnig gera nemendur skriflegar greinargerðir sem er svo safnað saman og skilað sem safnmöppu í lok áfangans. Gerðar eru kröfur um töluverða leikni í tungumálinu. Áfanginn er símatsáfangi sem byggir á munnlegum og skriflegum verkefnum ásamt raunmætingu. Hægt er að velja hann sem 3 eða 5 einingar.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- ólíkum textagerðum, s.s. skáldsögum, smásögum, tímaritsgreinum og efni á netinu
- þeim orðaforða sem er nauðsynlegur til að mæta markmiðum áfangans
- mannlífi og menningu frönskumælandi landa
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa margs konar texta og vinna úr þeim á mismunandi hátt
- greina ítarlega frá efni texta sem nemandi hefur unnið með, bæði munnlega og skriflega
- taka þátt í ítarlegum samræðum um efnið og setja fram og rökstyðja eigin skoðun
- nota hjálpargögn, svo sem orðabækur, við úrvinnslu texta
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- fjalla á ítarlegan hátt, munnlega og skriflega, um margskonar efni sem nemandi hefur kynnt sér sjálfstætt
- vera þátttakandi í frönskumælandi samfélagi með yfirsýn yfir aðstæður og viðburði samfélagsins hverju sinni
- skilja ýmis blæbrigði málsins eftir málsvæðum og aðstæðum
- geta tjáð sig óundirbúið um efni á tungumálinu og lýst skoðun sinni og annarra
- vinna sjálfstætt og skipulega
Nánari upplýsingar á námskrá.is