Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: ÞÝSK1ÞC05
Markmiðið er að nemendur lesi þýsku sér til ánægju og gagns og þjálfist í að nota tungumálið til að tala um efni sem þeir hafa lesið og kynnt sér. Unnið verður með styttri bækur, ævintýri, barnabækur, tímaritsgreinar og efni á netinu. Nemendur velja að stórum hluta það efni sem þeir vinna með. Í upphafi áfangans eru nokkrar hefðbundnar kennslustundir þar sem efnisflokkar og vinnubrögð eru kynnt. Eftir það vinna nemendur hver fyrir sig en geta leitað aðstoðar kennara. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og góða mætingu. Áfanginn er símatsáfangi þar sem nemendur kynna verkefni sín í viðtölum við kennara og vinna skriflegar greinargerðir sem mynda safnmöppu sem skilað er í lok annar. Hægt er að velja áfangann sem 3 eða 5 einingar.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- ólíkum textagerðum, s.s. styttri bókum, ævintýrum, barnabókum, tímaritsgreinum og efni á netinu
- þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta markmiðum áfangans
- notkun þýsku til að mæta markmiðum áfangans bæði munnlega og skriflega
- mannlífi og menningu í löndum þar sem þýska er töluð sem móðurmál
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa margs konar texta og vinna úr þeim á mismunandi hátt
- kynna afmörkuð, undirbúin efni og taka þátt í samræðum um þau með því að beita framburði og málnotkun á sem réttastan hátt
- skrifa styttri samfelldan texta, t.d. samantekt, draga ályktanir og tjá eigin skoðanir
- nota hjálpargögn, svo sem orðabækur, við úrvinnslu texta
- velja sér lesefni á hæfilegu þyngdarstigi
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- fjalla á nokkuð ítarlegan hátt, munnlega og skriflega, um efni sem hann hefur valið sér og tjá eigin skoðanir
- fjalla um og halda uppi samræðum um efni sem hann hefur kynnt sér
- vinna sjálfstætt og skipulega
- tileinka sér jákvætt viðhorf til þýskunnar og hafa trú á eigin kunnáttu í faginu.
Nánari upplýsingar á námskrá.is