Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Þar sem þetta er byrjunaráfangi er megináhersla lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins. Strax frá upphafi eru nemendur þjálfaðir í lesskilningi ásamt samskiptaþáttunum tali, hlustun og ritun. Áhersla er lögð á réttan framburð, þjálfun nokkurra helstu grunnatriða málfræðinnar sem og uppbyggingu orðaforða sem tengist nemandanum og hans nánasta umhverfi. Nemendur fá innsýn í menningu og staðhætti þýskumælandi landa.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta markmiðum áfangans
- notkun tungumálsins til að mæta markmiðum áfangans bæði munnlega og skriflega
- nokkrum helstu grundvallarþáttum málkerfisins
- þýskumælandi löndum og fengið innsýn í menningu, samskiptavenjur og siði þjóðanna
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
- fylgja einföldum fyrirmælum og skilja helstu kveðjur og kurteisisávörp
- lesa einfalda texta sem innihalda algengan orðaforða sem tengist honum, umhverfi hans og áhugamálum og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni
- taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir og beita kurteisis- og málvenjum við hæfi
- segja á einfaldan hátt frá sjálfum sér, fjölskyldu sinni og atburðum daglegs lífs með því að beita orðaforða og framburði á sem réttastan hátt
- skrifa stutta, einfalda texta um sjálfan sig og sitt nánasta umhverfi
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tjá sig munnlega og skriflega á einfaldan hátt um efni sem hann þekkir
- skilja einfalt talað mál
- skilja meginatriði einfaldra texta
- geta metið eigið vinnuframlag og kunnáttu
- tileinka sér jákvætt viðhorf til þýskunámsins og öðlast trú á eigin getu í faginu
Nánari upplýsingar á námskrá.is