Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ENSK3BR05/ENSK3AC05
Áfanginn er bæði fræðilegur og verklegur. Lesin verða textabrot sem tengjast viðfangsefnum skapandi skrifa. Áherslan er lögð á greiningu verka og aukinn orðaforða til tæknilegs undirbúnings fyrir það að skrifa eigin texta. Fjölmörg skriftarverkefni auk útgáfu á eigin smásögu rafrænt. Kröfur áfangans samsvara hæfnisþrepi B2 í Evrópska tungumálarammanum (CEFRL)
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- tjáningarmöguleikum rithöfunda
- tæknilegum atriðum við skapandi skrif
- persónusköpun í bókmenntum
- mismunandi frásagnarstíl og sjónarhorni sögumanns
- þankahríð og fríhendisskrift
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skrifa út frá mismunandi sjónarhorni sögumanns
- skapa trúverðulegar sögupersónur
- skrifa fríhendis byrjun á þankahríð eða afleiðingar hennar
- nota tæknileg vinnubrögð er kemur að skapandi skrifum
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tjá hugmyndir í riti
- virkja sköpunarkraft og hugmyndaflug
- geta betur notið bókmennta og þekki mismunandi tjáningarform rithöfunda.
Nánari upplýsingar á námskrá.is