Einingafjöldi: 2
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Í áfanganum eru nemendur þjálfaðir í upplestri og framsögn. Lögð áhersla á áheyrilegan, skýran og blæbrigðaríkan framburð. Nemendur flytja fjölbreytta texta í bundnu máli og óbundnu. Auk þess semja þeir efni og flytja. Þeir læra undirstöðuatriði í ræðumennsku og æfa sig í að flytja spunaverkefni.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu einkennum íslensks talmáls við mismunandi aðstæður
- helstu einkennum íslensks talmáls við flutning efnis
- mismunandi málsniðum í íslensku talmáli
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- tjá sig munnlega með skýrum hætti
- skilja og nota algeng stílbrögð
- semja ræður og kynningar með því að draga saman og nýta upplýsingar úr ýmiss konar heimildum og flétta saman við eigin viðhorf og ályktanir
- flytja af nokkru öryggi ræður, endursagnir, lýsingar og kynningar á tilteknum málefnum
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- styrkja eigin málfærni
- beita skýru, lýtalausu og blæbrigðaríku máli við flutning á ýmiss konar efni
- taka þátt í málefnalegum umræðum, byggja upp skýra röksemdafærslu, tjá afstöðu og efasemdir um efnið og komast að niðurstöðu.
Nánari upplýsingar á námskrá.is