ÍSLE3BF05 - Bókmenntir fyrri alda

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ÍSLE2MN05
Í áfanganum verður viðfangsefnið bókmenntasaga og bókmenntir fyrri alda. Nemendur lesa Íslendingasögu og fjallað er um bókmenntir og bókmenntastefnur fyrri alda frá 1550-1920. Haldið er áfram að þjálfa nemendur í ritun og heimildavinnu.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • ýmis konar ritun og heimildavinnu
  • orðaforða sem nægir til að lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu
  • uppbyggingu ljóða, myndmáli og stílbrögðum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • rita mismunandi texta þar sem beitt er gagnrýninni hugsun við úrvinnslu og efninu komið á framfæri á skýran og greinargóðan hátt í blæbrigðaríku máli
  • ganga frá hvers kyns texta og nýta sér uppbyggilega gagnrýni
  • draga saman og nýta á viðurkenndan og gagnrýninn hátt upplýsingar úr heimildum
  • lesa sér til gagns og gamans texta frá fyrri öldum
  • átta sig á helstu bókmenntastefnum fyrri alda
  • lesa ljóð og greina þau

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skrifa skýran og vel uppbyggðan texta og geta valið ritstíl eftir aðstæðum og viðtakendum
  • beita málinu á viðeigandi og árangursríkan hátt við mismunandi aðstæður
  • tjá rökstudda afstöðu og taka virkan þátt í málefnalegri umræðu
  • draga saman aðalatriði, beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta, átta sig á samfélagslegri skírskotun og ná duldum boðskap og hugmyndum
  • sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • sýna þroskaða siðferðisvitund, víðsýni, sköpunarhæfni og samlíðan í málflutningi sínum, umfjöllun og verkum
Nánari upplýsingar á námskrá.is