LÍFF2GF04 - Grunnáfangi í líffræði fyrir hug- og félagsvísindabraut

Einingafjöldi: 4
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Í þessum grunnáfanga fyrir hug- og félagsvísindadeild er gerð grein fyrir hlutverki líffræðinnar og tengslum hennar við aðrar fræðigreinar. Fjallað er um helstu viðfangsefni líffræðinnar. Helstu efnisþættir eru: líffræði sem fræðigrein og undirflokkar hennar, helstu sameiginleg einkenni lífvera, efni og helstu efnaferlar í lífverum, bygging og starfsemi fruma, æxlun lífvera, grundvallaratriði erfða og helstu kenningar um þróun. Farið er yfir grundvallaratriði í lífeðlisfræði manna, með það í huga að nemendur geti tekið ábyrgð á eigin heilsu. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist þekkingu og skilning á umhverfi sínu og því sem menn eiga sameiginlegt með öðrum lífverum. Því er reynt að tengja líffræðina daglegu lífi og áhugasviði ungs fólks. Einnig eru verkefni tengd umhverfi nemenda með það fyrir augum að auka áhuga þeirra og kynna þeim mikilvægi þekkingar á líffræði í daglegu lífi.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • sérkennum líffræðinnar sem fræðigreinar og tengslum hennar við aðrar greinar
  • grundvallarhugtökum líffræðinnar
  • helstu einkennum lífvera
  • helstu flokkum efna í lífverum
  • byggingu og starfsemi mannslíkamans
  • æxlun lífvera
  • helstu kenningum um erfðir og þróun

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skoða lífverur í náttúrunni og í smásjá
  • tengja eigin líkamsstarfssemi við þekkingu í lífeðlisfræði
  • átta sig á einföldum erfðamynstrum
  • lesa líffræðilegan texta

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • auka skilning á fyrirbærum náttúru- og raunvísinda
  • leggja gróft mat á upplýsingar sem tengjast líffræðilegum viðfangsefnum í samfélaginu á gagnrýninn hátt
  • tengja undirstöðuþekkingu í líffræði við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi hennar
  • taka ábyrgð á eigin lífi m.t.t. líffræðilegra þátta
Nánari upplýsingar á námskrá.is