Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: LÍFF2GR05
Í þessum kjarnaáfanga í lífeðlisfræði fyrir náttúruvísindadeild er gerð grein fyrir inntaki lífeðlisfræðinnar og farið í helstu þætti í líkamsstarfsemi manna.. Helstu efnisþættir eru: innri starfsemi fruma, boðflutningur; efnaboð og taugaboð, blóðrás og önnur flutningskerfi, varnarkerfi, úrgangslosunarkerfi, næringarnám og melting, stoðkerfi og hreyfing, skynjun og æxlun og þroski. Reynt verður að auka skilning nemenda á þeirra eigin líkamsstarfsemi og auðvelda þeim að taka ábyrgð á eigin lífsháttum m.t.t. þess að viðhalda heilbrigði sínu. Kynnt er mikilvægi þekkingar á lífeðlisfræði í daglegu lífi.
Nemendur verði búnir undir frekara nám í lífeðlisfræði og skyldum greinum.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- frumulífeðlisfræði, frumuöndun
- meltingarkerfi og orkubúskap líkamans
- loftskiptakerfi
- blóðrás og hlutverkum blóðs
- ónæmiskerfi
- mismunandi hlutverkum boðefna
- eðli taugaboða og starfsemi taugakerfis
- útgangslosun og efnastjórn
- æxlun og fósturþroska
- stoðkerfum og eðli hreyfingar
- skynjun manna og dýra
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa lífeðlisfræðilegar upplýsingar úr máli og myndum
- skoða vefi og líffæri
- lesa í samspil mismunandi líffærakerfa við stjórn líkamsstarfseminnar
- meta áhrif lífshátta á heilbrigða þroskun og starfsemi líkamans
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- auka skilning á lífeðlisfræðilegum viðfangsefnum
- leggja gróft mat á lífeðlisfræðilegar upplýsingar á gagnrýninn hátt
- tengja undirstöðuþekkingu í lífeðlisfræði við daglegt líf og sjá notagildi hennar
- taka ábyrgð á eigin lífi m.t.t. lífeðlisfræðilegra þátta
- afla sér frekari þekkingar á sviði lífeðlisfræðinnar
Nánari upplýsingar á námskrá.is