LÍFF3EF05 - Erfðafræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: LÍFF2GR05 eða LÍFF2GF04
Í þessum valáfanga í erfðafræði fyrir náttúruvísindabraut er gerð grein fyrir viðfangsefnum erfðafræðinnar og farið í helstu hugtök og undirstöðuatriði erfða. Helstu efnisþættir eru : ágrip af sögu erfðafræðinnar, erfðafræði Mendels, gen, litningar, frumuskipting, víkjandi, ríkjandi og kyntengdar erfðir, litningavíxl, stökkbreytingar og litningabreytingar, DNA og RNA, afritun, umritun og þýðing, genatjáning, erfðafræði örvera, grunnatriði erfðatækni, príon, krabbameinsgen og vefjaflokkar og siðfræði erfðarannsókna. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist þekkingu og skilning á einföldum erfðalögmálum, uppbyggingu erfðaefnis og hvernig erfðaefnið flytur upplýsingar milli kynslóða. Nemendur skilji hvernig erfðaefni hefur áhrif á fjölbreytileika lífvera og hvernig svo fjölbreytilegar lífverur hafa orðið til. Kynnt er mikilvægi þekkingar á erfðafræði fyrir viðfangsefni daglegs lífs og hvaða möguleika erfðafræðin gefur til framtíðar. Nemendur verði búnir undir frekara nám í erfðafræði.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • kenningum Mendels og grunnhugtökum erfðafræðinnar
  • genum, litningum, mítósu og meiósu
  • mismunandi erfðamynstrum
  • litningavíxlum, stökkbreytingum og litningabreytingum
  • byggingu DNA og RNA
  • eftirmyndum, umritun og þýðingu
  • erfðum örvera
  • grundvallaratriðum í erfðatækni
  • tjáningu gena
  • príonum
  • ýmsum meingenum
  • tengslum erfða og þróunar

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa erfðafræðilegar upplýsingar úr máli og myndum
  • rekja einfaldar erfðir
  • segja fyrir um líkur á erfðum tengdra og ótengdra eiginleika
  • tengja saman basaröð í DNA og amínósýrusamsetningu próteina
  • gera grein fyrir hvernig nýta má örverur í rannsóknum í erfðafræði
  • fjalla um siðfræðileg álitamál erfðatækninnar

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • auka skilning sinn á erfðafræðilegum viðfangsefnum
  • geta tekið rökstudda afstöðu til erfðafræðilegra dægurmála
  • tengja undirstöðuþekkingu í erfðafræði við daglegt líf og átta sig á notagildi hennar
  • taka ábyrgð á eigin lífi m.t.t. erfðafræðilegra þátta
  • afla sér frekari þekkingar á sviði erfðafræðinnar
Nánari upplýsingar á námskrá.is