Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: STÆR2GN05
Ræð föll, aðfellur, rótarjöfnur, brotajöfnur, algildisjöfnur, jöfnur á 2. stigs formi, ójöfnur
og formerkjatöflur. Vaxtareikningur, vísis- og lograföll.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- ræðum föllum og aðfellum
- sönnunum á helstu reglum í námsefninu
- veldareglum og brotnum veldisvísum
- lausn rótarjafna, brotajafna og algildisjafna
- lausn á ýmsum tegundum ójafna
- vísis- og lograföllum
- einingarhring og hornaföllum
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- leysa ýmsar tegundir jafna og ójafna
- meðhöndla ýmis föll, andhverfur og samsetningar falla
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
- átta sig á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausn verkefna
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
- geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta
- beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
- taka ákvarðanir í sértækum verkefnum.
Nánari upplýsingar á námskrá.is