Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: STÆR2TÖ05
Líkindareikningur: Líkindi og helstu líkindadreifingar og útreikningar tengdir þeim. Tölfræði: Ályktunartölfræði, grunnatriði úrtaksfræði. Kenndar eru nokkrar helstu úrvinnsluaðferðir innan ályktunartölfræði. Megin markgildissetning tölfræðinnar. Tilgátur og prófanir.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- algengustu líkindadreifingum
- ályktunartölfræði
- öryggisbil
- framsetningu tilgáta og prófana á þeim
- öflun tölfræðilegra upplýsinga
- þekkja fervikagreiningu (ANOVA), aðhvarfsgreiningu og áreiðanleikapróf með tölfræðiforritum
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nýta einfalda líkindadreifingu sem líkan við útreikning líkinda
- fara með hugtökin öryggisbil, öryggismörk, skekkjumörk, öryggisstig o.s.frv.
- setja fram tilgátu og gera á henni viðeigandi tölfræðilegt próf
- reikna fylgni milli tveggja breytna
- nýta tölfræðileg forrit við gagnavinnslu, prófanir og ályktanir
- geta reiknað fervikagreiningu í aðhvarfsgreiningu og áreiðanleikapróf með tölfræðiforritum
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
- geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta
- beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
- fella stærðfræðileg viðfangsefni inn í þá þekkingu og færni sem hann býr yfir
- vera fær um að túlka niðurstöður þessara prófa og dregið viðeigandi ályktanir
Nánari upplýsingar á námskrá.is