Einingafjöldi: 6
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Í þessum byrjunaráfanga er fjallað um grunneiningar samfélagsins og þær skoðaðar frá sjónarhorni félagsvísinda. Fjallað er um samfélagið í ljósi þeirra áhrifa sem það hefur á einstaklinginn og líf hans. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist þekkingu á ólíkum samfélagshópum svo að þeir verði færir um að taka virkan þátt í samfélagslegum umræðum og mynda sér skoðanir á meðvitaðan og gagnrýninn hátt. Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur fái fræðslu um jafnrétti á víðum grundvelli. Meðal efnisþátta eru kynþáttamisrétti, kynheilbrigði, kynbundið ofbeldi, hinseginleikinn og áhrif lagskiptingar á lífsgæði. Nemendur kynna sér félagslega þætti sem stýra hugsun og athöfnum einstaklingsins og keppt er að því að nemendur öðlist skilning á skipulagi eigin samfélags og tengingu þess við alþjóða samfélagið. Meginmarkmið áfangans er að nemendur átti sig á því hvernig samfélagið hefur áhrif á þá og hvernig þeir geta haft áhrif á samfélagið.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- algengustu hugtökum félagsvísinda
- helstu áhrifavöldum í félagsmótun s.s. fjölskyldu, skóla, félaga og fjölmiðla
- mikilvægustu félagslegu festum ólíkra samfélaga og tilgangi þeirra
- birtingarmyndir lagskiptingar með sérstakri áherslu á íslenskt samfélag
- hvernig fordómar hafa áhrif á ólíka hópa samfélagsins
- helstu hugtökum stjórnmálafræðinnar s.s. valdi, lýðræði og þrískiptingu ríkisvaldsins
- íslenskum vinnumarkaði s.s. atvinnuþátttöku, launajafnrétti og hagsmunasamtökum
- samstarfi þjóða á alþjóðavettvangi s.s. innan Sameinuðu þjóðanna, Evrópusambandsins og á sviði alþjóðlegra viðskipta
- hvaða þættir stuðla að kynheilbrigði
- birtingarmyndum hinseginleikans
- kynbundnu ofbeldi og hvernig það birtist í nánum samböndum
- réttindum og skyldum sínum gagnvart samfélaginu
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita algengustu hugtökum félagsvísinda á skýran og skilmerkilegan hátt
- lesa og skilja áhrif félagslegra festa í samfélaginu
- greina stöðu sína innan samfélagsins og þau áhrif sem einstaklingar geta haft í samfélaginu
- gera grein fyrir einkennum og þróun ólíkra samfélaga
- setja fram niðurstöður sínar bæði munnlega og skriflega
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- gera grein fyrir samspili þekkingar, umburðarlyndis og fordóma
- tjá sig skipulega og gagnrýnið um samfélagsleg álitamál
- geta lagt mat á heimildir og upplýsingar í félagsvísindum
- geta beitt öguðum vinnubrögðum, tekið ábyrgð á eigin námi og unnið í samvinnu við aðra
- Vita hvenær og hvert má leita eftir aðstoð vegna kynbundins ofbeldi
Nánari upplýsingar á námskrá.is