Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: LÍFF2GR05 og EFNA2EH05
Í þessum valáfanga í líffræði fyrir náttúruvísindabraut er gerð grein fyrir viðfangsefnum vistfræðinnar, farið í helstu hugtök og undirstöðuatriði fræðigreinarinnar með áherslu á sérstöðu Íslands.Helstu efnisþættir eru: helstu hugtök vistfræðinnar, vistfræðirannsóknir, uppbygging vistkerfa, sérstaða Íslands, orkuflæði og efnahringrásir, líffræðilegur fjölbreytileiki, tegundasamsetning vistkerfa, stofnvistfræði, sjálfbær nýting auðlinda, umgengni við náttúruna, sjálfbærni og sérstaða íslenskrar náttúru í því samhengi. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist yfirsýn yfir vistfræði sem fræðigrein, þekki aðferðafræði hennar og öðlist skilning á helstu hugtökum. Nemendur skilji mikilvægi fjölbreytileika vistkerfa og þekki sérstöðu Íslands í því samhengi. Kynnt er mikilvægi þekkingar á vistfræði fyrir viðfangsefni daglegs lífs, tengsl við aðrar fræðigreinar og samhengi milli náttúrulegra vistkerfa og lífshátta mannsins. Þá er farið yfir áhrif mannsins á hin ýmsu vistkerfi og helstu áskoranir sem vistkerfi standa frammi fyrir og hvaða möguleika vistfræðin gefur til framtíðar. Nemendur verði búnir undir frekara nám í líffræði og umhverfisfræði.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- sögu vistfræðinnar
- helstu hugtökum vistfræðinnar
- vistfræðirannsóknum
- uppbyggingu vistkerfa
- sérstöðu Íslands
- orkuflæði og efnahringrásum
- líffræðilegum fjölbreytileika
- tegundasamsetningu vistkerfa
- helstu hugtökum í stofnvistfræði
- sjálfbærri nýtingu auðlinda
- tengslum vistkerfa og lífshátta manna
- mikilvægi náttúruverndar
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa vistfræðilegar upplýsingar úr máli og myndum
- beita hugtökum vistfræðinnar
- þekkja ólík vistkerfi
- fara í vettvangsferðir
- vinna skýrslur
- fjalla um álitamál sem varða íslenska náttúru og umhverfismál í víðum skilningi
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- auka skilning sinn á vistfræðilegum viðfangsefnum
- geta tekið rökstudda afstöðu til vistfræðilegra dægurmála
- tengja undirstöðuþekkingu í vistfræði við daglegt líf og sjá notagildi hennar
- taka ábyrgð á eigin lífi m.t.t. vistfræðilegra og umhverfisfræðilegra þátta
- afla sér frekari þekkingar á sviði vistfræðinnar
- skilja viðfangsefni umhverfisfræðinnar í vistfræðilegu samhengi
- afa sér frekari þekkingar á sviði vistfræðinnar
Nánari upplýsingar á námskrá.is