DANS2LR04 - Lestur, ritun, menning og munnleg færni

Einingafjöldi: 4
Þrep: 2
Forkröfur: DANS2ML03
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur vinni með flóknari texta en áður. Unnið er með orðaforða sem m.a. tengist daglegu lífi, umhverfismálum, lífsstíl, menningu og listum. Áhersla er lögð á vandlegan lestur texta með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Nemendur kynnast danskri og norrænni menningu og fjallað verður um siði og venjur dansks samfélags. Í áfanganum er notast við ýmsa rauntexta auk bókmenntatexta. Nemendur vinna sjálfstætt að viðameiri verkefnum í formi kynninga og ritunarverkefna. Kröfur áfangans samsvara hæfniþrepi B2 í Evrópska tungumálarammanum (CEFRL).

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • danska menningarsvæðinu og hvernig danska nýtist á norræna menningarsvæðinu almennt
  • ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta danska menningu
  • auknum orðaforða sínum
  • aukinni munnlegri og skriflegri færni sinni

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skilja eðlilegt talað mál við mismunandi aðstæður sem og algengustu orðasambönd sem einkenna það
  • lesa fjölbreyttar gerðir texta og beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð textans eða viðfangsefnisins
  • tjá sig munnlega skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér
  • rita margs konar texta
  • beita meginreglum danskrar málfræði og setningafræði

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja daglegt mál svo sem samræður og fjölmiðlaefni, inntak erinda og annað tiltölulega flókið efni sem hann hefur kynnt sér
  • tileinka sér innihald ritaðs texta og nýta það á mismunandi hátt
  • lesa á milli línanna og átta sig á dýpri merkingu texta
  • geta tjáð sig hiklaust og tekið þátt í samræðum um efni sem hann þekkir
  • geta skipst á skoðunum og sett fram hugmyndir sínar af talsverðu öryggi og komið þeim kunnáttusamlega til annarra
  • tjá sig skýrt, lipurlega og blaðalaust fyrir áheyrendum um sérvalið efni sem nemandinn hefur kynnt sér
  • geta skrifað margs konar texta
  • skrifa margs konar texta og fylgja þeim rithefðum sem við eiga hverju sinni
  • leita sér upplýsinga og fróðleiks á dönskum netsíðum.
Nánari upplýsingar á námskrá.is