Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: EFNA2EH05
Í þessum síðasta skylduáfanga sem er á 3. þrepi er aukin áhersla á að nemendur geti nýtt sér markvisst fyrri þekkingu, sýni sjálfstæðari vinnubrögð og tengi saman fleiri og flóknari efnisþætti.
Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: efnafræði lofttegunda, jafnvægi í efnahvörfum, sýrur og basar, jafnalausnir, títranir og leysnimargfeldi og orka í efnahvörfum.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- efnafræði lofttegunda
- jafnvægi í efnahvörfum
- efnafræði sýra og basa og jafnvægi hjá daufum sýrum og bösum
- efnafræði lausna, jafnalausnum, títrunum og leysnimargfeldi
- sjálfgengni efnahvarfa, Gibbs fríorku og tengslum hennar við jafnvægisfastann
- samspili sýru og basa, jafnvægis, orku í efnahvörfum og efnafræði lausna
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nota gaslíkinguna og reikna hlutþrýsting
- nota jafnvægisfasta og jafnvægisstyrki til útreikninga og nota reglu Le Châtelier
- vinna með flóknari útreikninga tengda sýrum og bösum en áður
- reikna orkubreytingar í efnahvörfum og tengja saman orkubreytingar og jafnvægisástand
- sýna sjálfstæði við framkvæmd verklegra æfinga og skrifa góða einstaklingsskýrslu
- sjá tengsl milli áðurnefndra námsþátta í stærra samhengi
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- sjá tengslin milli náttúrufræðigreina og geta yfirfært þekkingu á milli þeirra
- tengja saman efnisþætti efnafræðinnar við lausn flókinna verkefna
- leggja mat á áreiðanleika niðurstaðna rannsókna sinna og annarra
- standa undir auknum kröfum um sjálfstæði í vinnubrögðum og ábyrgð á eigin námsframvindu
- nýta sér flókinn texta og gögn á markvissan hátt
- nýta þekkingu úr efnafræði til að taka ákvarðanir, mynda sér skoðanir og taka þátt í rökræðum sem byggja á þekkingu í efnafræði
- meta eigin frammistöðu og annarra á gagnrýninn hátt
- tengja efnafræðina við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi hennar
- takast á við frekara nám í efnafræði á háskólastigi
Nánari upplýsingar á námskrá.is