UMHV3UR05 - Umhverfisfræði fyrir náttúruvísindabraut

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: LÍFF2GR05, JARÐ2AJ05 og EFNA2EH05
Þessi áfangi fjallar um umhverfismál og byggir ofaná grunnáfanga í efnafræði, líffræði og jarðfræði með þverfaglegri nálgun að umhverfisfræði. Áfanganum er ætlað að dýpka skilning nemenda á samhengi fræða, umhverfis og þeirra eigin lífsstíls. Helstu efnisþættir eru: umhverfi, nær- og fjarumhverfi og landslag jarðar; áhrif mannsins á vistkerfi jarðar; umhverfissiðfræði, sjálfbær þróun og alþjóðleg samvinna; orka, orkugjafar, kol, olía, vatnsafl og jarðhiti; skipulagsmál, manngert umhverfi; nýting jarðefna, endurnýjanlegar auðlindir, endurnýting, mengun, sorp, úrgangur og flokkun, vistvænn lífsstíll. Áhersla er lögð á efnafræðilega nálgun og notkun stærð- og tölfræði við skoðun og lausn viðfangsefna. Í áfanganum eru fyrrnefndar grunngreinar, einkum efnafræði, notaðar til að skoða samspil umhverfis og athafna mannsins. Helstu hugtök sem tengjast umræðu um umhverfismál eru kynnt. Mikilvægi þess að nota fræðilegan grunn og hugtök umhverfisfræðinnar sem forsendu að ákvarðanatöku varðandi lífsstíl manna skoðað. Nemendur vinna sjálfstætt og í hópum, lögð verður áhersla á þemavinnu auk þess sem kynntar verða stofnanir og fyrirtæki sem tengjast málefnum og efni áfangans.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hugtökum fræðigreinarinnar umhverfisfræði
  • efnafræðinni sem liggur að baki helstu umhverfisvandamálum samtímans
  • viðhorfum umhverfissiðfræðinnar
  • hverjar eru auðlindir jarðar og hvernig nýtingu þeirra er háttað
  • orkubúskap jarðar og helstu orkugjöfum
  • kenningum um áhrif mannsins á umhverfið
  • alþjóðlegri samvinnu varðandi umhverfismál

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • tengja saman ólíkar fræðigreinar sem varða umhverfismál
  • lesa efni um umhverfismál á gagnrýninn hátt
  • taka rökstuddar ákvarðandir um eigin lifsstíl og neyslu
  • tengja saman siðferðisvitund og vitund um orsakir og afleiðingar af gerðum mannsins
  • vinna með öðrum að lausnum

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja umræðu og hugtök tengd umhverfismálum
  • taka ábyrga og rökstudda afstöðu til umhverfismála
  • geta tekið virkan þátt í umræðu og ákvarðanatöku um nýtingu náttúruauðlinda
  • skilja samhengi nýtingar auðlinda og áhrifa hennar á lífríki og landslag og þáttar mannsins í þróun umhverfis
  • tengja þekkingu á umhverfismálum við daglegt líf og átta sig á mikilvægi hennar til framtíðar
  • sýna ábyrgð í eigin umhverfi við náttúruna
  • öðlast heildstæða mynd af vanda sem ógnar framtíð jarðar og mikilvægi alþjóðarhyggju í þessum málaflokki
Nánari upplýsingar á námskrá.is