STÆR3VN05 - Fjármálastærðfræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: STÆR3DÓ05 eða STÆR3VF05
Lögð verður áhersla á arðsemi hlutabréfa og fjárfestinga með núvirðisreikning, hámörkun hagnaðar með diffrun. Farið verður í diffurjöfnur og diffurjöfnuhneppi og einnig fylki og aðferð minnstu kvaðrata til að rannsaka hegðun á markaði. Að lokum verður farið í afleiðuútreikninga. Áfanginn er góður undirbúningur fyrir þá sem hafa hug á að kynna sér hagnýtinguna í stærðfræði og fjármálum. Efni áfangans er góður undirbúningur fyrir nám í hagfræði, viðskiptafræði, iðnaðarverkfræði eða fjármálaverkfræði en sýnir einnig hvernig stærðfræði er notuð í bankakerfinu.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • núvirðis- og framvirðisútreikningum
  • grunnatriðum aðhvarfsgreiningar
  • diffurjöfnum af fyrsta og öðru stigi
  • diffurjöfnuhneppi
  • innri vöxtum
  • fjárstreymi
  • fylkjareikning
  • grunnatriðum runum og raða

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa núvirðisreikninga, með jöfnu fjárstreymi, yfir eitt tímabil eða mörg
  • leggja saman, margfalda og deila með tvinntölum
  • finna út runir og raðir af fjárstreymi
  • reikna diffurjöfnur
  • gera margvíða aðhvarsgreiningu í Rstudio
  • leysa diffurjöfnur af fyrsta og öðru stigi
  • leysa diffurjöfnuhneppi
  • leggja saman fylki, finna andhverfur fylkja, finna eiginvigra og eiginfylki og margfalda saman fylki

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta lesið ársreikning, tekið úr honum lykilupplýsingar og reiknað út virði félagsins
  • geta sett upp viðskiptahugmynd, reiknað út fjárstreymi og núvirði viðskiptahugmyndarinnar
  • geta spáð fyrir um þróun virðis hlutabréfa með aðhvarfsgreiningu
  • geta fundið bestu lausn á framleiðslufalli með diffurreikningi
  • velja aðferðir til að leysa verkefni og beita þeim rétt
Nánari upplýsingar á námskrá.is