ÍSLE1SB04 (íslenska) - Þjóðsögur og ævintýri

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1

Í áfanganum er unnið með um þjóðsögur og ævintýri. Lögð er áhersla á uppruna, einkenni og trúverðugleika þjóðsagna. Fjallað verður um þróun og boðskap þjóðsagna og ævintýra og gildi þeirra fyrir samfélög. Nemendur lesa og/eða hlusta á sögur og frásagnir og þjálfast sjálfir í að segja sögur. Áhersla er lögð á þjálfun í lestri, hlustun, ritun, tjáningu og málnotkun á fjölbreyttan hátt. Lögð verður áhersla á sjálfstæð vinnubrögð auk samvinnu nemenda.

Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu einkennum þjóðsagna og ævintýra
  • inntaki þeirra verka sem lesin eru
  • gildi sagnanna í menningu okkar
  • þjóðsögum í nærumhverfi sínu
  • því helsta sem þarf að hafa í huga þegar saga er sögð

 

Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa þjóðsögur sér til gagns og gamans
  • flytja sögur af nokkru öryggi
  • fjalla um söguþráð úr þjóðsögum
  • greina inntak þjóð- og draugasagna
  • miðla þekkingu sinni á þjóðsögum í nærumhverfi
  • tileinka sér fjölbreytt vinnubrögð

 

Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • vinna frekar með þjóðsögur og ævintýri og efni þeim tengt
  • skilja að þjóðsögur eru hluti af menningararfi Íslendinga
  • takast á við fjölbreytt verkefni á vandaðan hátt

 

Námsmat
Leiðsagnarmat er viðhaft í hverjumtíma. Fjölbreyttverkefnierumetinyfirönninaogáherslalögð á umsagnirsemleiðanemandannáfram. Virkninemendaogmætingskiptiröllumáli.