ÍSLE1SF04 - Bókmenntir

Námsgrein : Íslenska

Lýsing

Kjarnaáfangi á starfsbraut
Einingafjöldi: 4
Þrep: 1

Í áfanganum eru kynnt helstu grunnhugtök í bókmenntum. Fjallað verður um helstu bókmenntastefnur og flokka, einkenni þeirra skoðuð og helstu höfundar kynntir. Unnið verður með alla þætti íslenskunnar og fá nemendur tækifæri til að vinna með efnið á fjölbreyttan hátt. Textar eru valdir með það að markmiði að efla málskilning og orðaforða. Nemendur auki les- og hlustunarskilning sinn og æfist í að skilgreina hugtök.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mismunandi tegundum bókmennta
  • nokkrum helstu bókmenntastefnum
  • helstu hugtökum sem nýtast við umfjöllun um bókmenntir

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa bókmenntaverk frá ýmsum tímum og fjalla um inntak þeirra
  • vinna skapandi verkefni í tengslum við námsefnið

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • vinna skapandi verkefni í tengslum við námsefnið
  • taka þátt í málefnalegri umræðu um efnið
  • þekkja helstu höfunda, hugtök og bókmenntastefnur
  • gera sér grein fyrir áhrifum bókmennta á einstakinga og samfélag

 

Námsmat:

Leiðsagnarmat er viðhaft í hverjum tíma. Fjölbreytt verkefni eru metin yfir önnina og áhersla lögð á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Virkni nemenda og mæting skiptir öllu máli.