ÍSLE1SG04 (íslenska) - Smásögur

4 einingar
1. þrep 

Í áfanganum er lögð áhersla á lestur smásagna. Helstu einkenni smásagna eru skoðuð, bygging þeirra og persónusköpun. Unnið verður með alla þætti íslenskunnar og fá nemendur tækifæri til að vinna með efnið á fjölbreyttan hátt. Nemendur auka les- og hlustunarskilning sinn og fá æfingu í að skilgreina hugtök sem koma fram í texta og boðskap sagnanna.

Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • aldursmiðuðum smásögum
  • uppbyggingu smásagna
  • mikilvægi lestrar/hlustunar sem nýtist í daglegu lífi
  • mikilvægi málskilnings og orðaforða

Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa og/eða hlusta á mismunandi texta sér til gagns og gleði
  • vinna ýmis verkefni tengd efninu
  • svara spurningum úr smásögum
  • hlusta á upplestur og vinna verkefni úr efninu

Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nýta sér bókmenntir í daglegu lífi til gagns og/eða gleði í hvaða formi sem er, t.d. ritaðar smásögur, hljóðbækur og rafbækur
  • svara spurningum úr efninu, spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
  • láta skoðanir sínar í ljós

 

Námsmat 
Leiðsagnarmat er viðhaft í hverjumtíma. Fjölbreytt verkefni eru metin yfir önnina og áhersla lögð á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Virkni nemenda og mæting skiptir öllu máli.