LÍFS1MS04 (lífsleikni) - Málefni líðandi stundar

Einingafjöldi: 4
1. þrep

Í áfanganum er fjallað um samtímann út frá málefnum líðandi stundar og hvaða áhrif þau hafa á einstaklinginn í samfélaginu. Megin markmið áfangans er nemendur fái innsýn í áhrifamátt atburða líðandi stundar á samfélagið og einstaklinginn.

Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • leiðum til að geta aflað sér upplýsinga um málefni líðandi stundar
  • mikilvægi upplýstrar umræðu og skoðanaskipta
  • algengustu hugtökum samfélagsumræðunna

 

Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita gagnrýnni hugsun um málefni líðandi stundar
  • skoða áhrif atburða á einstaklinginn og samfélagið
  • tjá sig um málefni líðandi stundar

 

Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • meta upplýsingar um samfélagsleg málefni líðandi stundar
  • taka þátt í umræðum
  • mynda sér skoðanir
  • meta áhrifamátt samfélagslegrar umræðu


Námsmat
Leiðsagnarmat er viðhaft í hverjum tíma. Fjölbreytt verkefni eru metin yfir önnina og áhersla lögð á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Virkni nemenda og mæting skiptir öllu máli.