LÍFS1SJ04 - Jákvæð sjálfsmynd og samskiptahæfni

Námsgrein : Lífsleikni

Lýsing

Kjarnaáfangi á starfsbraut 
Einingafjöldi: 4
Þrep: 1

Áhersla verður lögð á að efla samskiptahæfni nemenda. Stuðlað verður að því að nemendur efli tilfinningaþroska sinn, auki sjálfsþekkingu sína og byggi upp jákvæða sjálfsmynd. Nemendur fá þjálfun í að tjá hugsanir sínar, skoðanir og tilfinningar. Nemendur vinna fjölbreytt verkefni sem stuðla að uppbyggilegum samskiptum og samkennd. Lögð verður áhersla á kurteisi og gagnkvæma virðingu.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • algengum samskiptareglum
  • mikilvægi þess að koma skoðunum sínum á framfæri
  • að fólk er mismunandi og getur haft ólíkar skoðanir
  • að hegðun og framkoma hefur áhrif á aðra
  • mikilvægi þess að vera kurteis og sýna virðingu

 

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita algengum samskiptareglum við mismunandi félagslegar aðstæður
  • tjá skoðanir sínar og tilfinningar á uppbyggilega hátt
  • gera sér grein fyrir að eigin framkoma hefur áhrif á aðra
  • virða og taka tillit til annarra
  • nota hvatningu og hrós

 

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • lesa í aðstæður og beita viðeigandi samskiptareglum
  • mynda sér sjálfstæðar skoðanir og tjá þær
  • sýna ábyrga framkomu
  • hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni

 

Námsmat:
Leiðsagnarmat er viðhaft í hverjum tíma. Fjölbreytt verkefni eru metin yfir önnina og áhersla lögð á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Virkni nemenda og mæting skiptir öllu máli.