NÝNE1SB01 - Nýnemafræðsla

Eingafjöldi: 1
1. þrep

Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur geri sér grein fyrir námskröfum starfsbrautar og aðlagist vel nýju skólaumhverfi. Farið er í skipulagningu á tíma og námi og kynntar eru árangursríkar námsaðferðir. Einnig fá nemendur fræðslu í samræmi við forvarnaráætlun skólans.

Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • námskröfum starfsbrautar
  • aðferðum til að skipuleggja tíma og nám
  • árangursríkum námsaðferðum
  • forvarnarstarfi


Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nýta tíma sinn vel og nota námsaðferðir sem skila árangri
  • setja sér markmið sem námsmaður og einstaklingur
  • þekkja skólaumhverfið og helstu starfsemi skólans

 

Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nota skipulögð vinnubrögð í námi
  • takast á við álag í námi
  • efla styrkleika sína og vinna að því að þeir nýtist sem best


Námsmat
Leiðsagnarmat er viðhaft í hverjum tíma. Fjölbreytt verkefni eru metin yfir önnina og áhersla lögð á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Virkni nemenda og mæting skiptir öllu máli.