SAGA3KS05 - Kalda stríðið
Undanfari : SAGA2MN05
Námsgrein
: Saga
Lýsing
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Í áfanganum verður fjallað um sögu Kalda stríðsins frá lokum síðari heimsstyrjaldar fram til ársins 1991 og gerð grein fyrir áhrifum þess á þá heimsmynd sem við nú búum við. Fjallað verður um hugmyndafræðileg átök stórvelda Bandaríkjanna og Sovétríkjanna og einstökum tímabilum í sögu Kalda stríðsins gerð góð skil, þar sem skiptust á harðnandi deilur og friðarumleitanir. Fjallað verður um upphaf og endalok Kalda stríðsins, skiptingu heimsbyggðarinnar milli átakaaðilanna, hernaðarbandalög stórveldanna, staðgenglastríðin og járntjaldið í Evrópu, baráttu hagkerfa kommúnisma og kapítalisma, kjarnorkuvána, vígbúnaðar- og geimferðakapphlaupið auk áhrifa Kalda stríðsins á þróun ríkja og samfélaga um gervallan heim. Meðal einstakra efnisþátta verða m.a. staðgenglastríðin í Kóreu, Víetnam og Afganistan, deilurnar um Berlín og Kúbu, uppreisnir og andóf í Evrópu, uppgangur nýrra stórvelda Kína og Indlands sem og barátta uppreisnar- og skæruliðaafla í Suður-Ameríku, Asíu og Afríku undir merkjum sósíalisma.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu sögulegum atburðum og átökum á tímum Kalda stríðsins
- hugtakinu ógnarjafnvægi í samskiptum stórvelda og áhrifum þess
- þeim ólíku hugmyndafræðilegu stjórnmálastefnum sem höfðu áhrif á tímabilinu
- hugmyndafræðilegri baráttu kommúnískra og kapítalískra samfélaga á tímabilinu
- efnahagsþróun tímabilsins í samfélögum Vesturlanda, Sovétríkjanna og á áhrifasvæðum þeirra
- einkennum og sögu Sovétríkjanna, Bandaríkjanna og Evrópuríkja á tímabilinu
- áhrifum Kalda stríðsins á alþjóðasamskipti og stjórnmálabaráttu í ólíkum heimshlutum
- þeim alþjóða- og ríkisstofnunum sem höfðu áhrif á þróun Kalda stríðsins
- helstu persónum sem höfðu áhrif á þróun Kalda stríðsins
- vígbúnaðarkapphlaupi og geimferðakapphlaupi Kalda stríðsins
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa fræðilegan texta á ensku um efni áfangans
- afla sér upplýsinga um efni áfangans, greina þær og setja í sögulegt samhengi
- meta gildi og áreiðanleika heimilda og nýta sér fjölbreyttar tegundir þeirra
- nýta sér internetið og bókasöfn til þess að afla sér dýpri fræðilegrar þekkingar á ýmsum efnisþáttum áfangans
- beita sagnfræðilegum aðferðum við úrvinnslu og skráningu heimilda
- tjá sig í ræðu og riti um efni áfangans, rökræða efnið og geta miðlað því á fjölbreyttan máta
- beita gagnrýnni hugsun og greina orsakasamhengi sögulegra atburða
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- koma söguþekkingu sinni og skilningi á efninu á framfæri með fjölbreytilegum hætti
- geta tekið þátt í skoðanaskiptum og rökræðum með jafningum um efni áfangans
- gera sér grein fyrir orsökum Kalda stríðsins og ástæðum fyrir endalokum þess
- geta ályktað um orsakasamband atburða í víðu sögulegu samhengi
- meta og greina áhrif Kalda stríðsins á alþjóðasamskipti og valdajafnvægi stórvelda
- geta ályktað um áhrif Kalda stríðsins á samtímaatburði og fá betri skilning á umfjöllun um alþjóðamál í fjölmiðlum
- gera sér grein fyrir einkennum og hegðun stórvelda í samskiptum á alþjóðavettvangi
- geta tekið gagnrýna afstöðu til samskipta stórvelda á alþjóðavettvangi og til hlutverks alþjóðastofnana.