SAMF1SA04 (samfélagsfræði) - Styrjaldir og kreppa

Einingafjöldi: 4
1. þrep

Í áfanganum er lögð áhersla á merka viðburði í sögu 20. aldar. Fjallað verður um heimstyrjaldirnar tvær, þróun verkalýðshreyfinga og byltinga. Lögð verður áhersla á að tengja efnið við daglegt líf og samfélagið í dag. Unnið verður með upplýsingatækni og margmiðlunarefni til heimildaröflun og verkefnavinnu. 

Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á: 

  • þeim atburðum sem fjallað er um og þýðingu þeirra fyrir mannkynssöguna 
  • sögulegri þróun tímabilsins og þeim viðburðum sem fjallað er um 
  • hvernig þróunin mótar samfélag nútímans
  • hugtök tengdum efninu

 

Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að: 

  • nemendur þjálfast í að lesa, hlusta á hljóðbækur eða nota talgerfla
  • nemendur getið aflað sér heimilda um viðfangsefnið sem er verið að fjalla um
  • nota leitarvefi í upplýsingaleit
  • þálfa hugann með því að útskýra hugtök 

 

Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tengja þekkingu sína á viðfangsefninu við samfélag nútímans 
  • tengja þekkingu sína á viðfangsefninu við leik og störf í daglegu lífi. 
  • átta sig á tengslum sögunnar við mótum samfélagsins 
  • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum 
  • leita frekari þekkingar á viðfangsefninu 
  • koma þekkingu á framfæri með fjölbreyttum hætti
  • meta heimildir á gagnrýninn hátt


Námsmat
Leiðsagnarmat er viðhaft í hverjum tíma. Fjölbreytt verkefni eru metin yfir önnina og áhersla lögð á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Virkni nemenda og mæting skiptir öllu máli.