STÆR1SA04 (stærðfræði) - Almennar reikniaðgerðir

4. einingar
1. þrep

Viðfangsefni áfangans eru reikniaðgerðirnar fjórar: Samlagning, frádráttur, margföldun og deiling. Áhersla er lögð á að þjálfa upp öguð og vönduð vinnubrögð með það fyrir augum að byggja upp sjálfstraust nemenda gagnvart stærðfræði og efla rökhugsun.

Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • undirstöðuatriðum í reikningsaðgerðum fjórum
  • heilum tölum

Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nota algeng stærðfræðitákn
  • meðhöndla heilar tölur, jákvæðar og neikvæðar, leggja saman, draga frá, margfalda og deila


Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • sýna útreikninga og skrá lausnir sínar á skipulagðan hátt
  • vanda alla framsetningu og gæta að réttri notkun stærðfræðitákna
  • tileinka sér sjálfstæð vinnubrögð


Námsmat
Leiðsagnarmat er viðhaft í hverjum tíma. Fjölbreytt verkefni eru metin yfir önnina og áhersla lögð á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Virkni nemenda og mæting skiptir öllu máli.