STÆR1SD04 - Prósentur

Námsgrein : Stærðfræði

Lýsing

Kjarnaáfangi á starfsbraut
Einingafjöldi: 4
Þrep: 1

Viðfangsefni áfangans eru prósentureikningur í daglegu lífi. Áhersla er lögð á að þjálfa upp öguð og vönduð vinnubrögð með það fyrir augum að byggja upp sjálfstraust nemenda gagnvart stærðfræði og efla rökhugsun.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • undirstöðuatriðum prósentureiknings
  • hugtökum prósentureiknings
  • áhrif prósentubreytinga á verðlag
  • hvernig vasareiknir nýtist í útreikningi

 

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • reikna hluta, heild og prósentu
  • beita rökhugsun við lausn verkefna
  • reikna verð eftir prósentubreytingar

 

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • sýna skilning á hugtökum verðbreytinga
  • meta áhrif prósentubreytinga
  • nýta prósentureikning við innkaup

 

Námsmat
Leiðsagnarmat er viðhaft í hverjum tíma. Fjölbreytt verkefni eru metin yfir önnina og áhersla lögð á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Virkni nemenda og mæting skiptir öllu máli.