Umsóknir eldri nema fyrir vorönn 2025

Sameiginlegt umsóknartímabil framhaldsskóla fyrir vorönn 2025 verður dagana 1. - 30. nóvember í gegnum vef Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu.

Ef pláss losna á félags- og náttúruvísindabraut er hver umsókn skoðuð sérstaklega og áskilur skólinn sér rétt til að velja úr umsóknum miðað við rými á námsbrautum og bekkjum og hvernig námsferlar umsækjenda passa inn í laus pláss í skólanum.