Kvennaskólinn tekur þátt í samstarfi

 

Síðastliðinn miðvikudag var skrifað undir samstarfsyfirlýsingu vegna barna í viðkvæmri stöðu í Reykjavík. Yfirlýsingin miðar að því að þróa áfram samvinnu á grundvelli laga og stefnu Reykjavíkurborgar til að tryggja umönnun og vernd barna gegn ofbeldi eða annarri vanvirðandi háttsemi. Kolfinna Jóhannesdóttir skólameistari Kvennaskólans skrifaði undir yfirlýsinguna fyrir hönd Kvennaskólans.

Framhaldsskólar í Reykjavík, Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, skóla- og frístundaþjónusta og deild barna og fjölskyldna á miðstöðvum Reykjavíkurborgar og Barnaverndarþjónusta Reykjavíkur hafa ákveðið að vinna saman til að stuðla að farsæld fyrir börn sem eru í viðkvæmri stöðu.

Fyrir áhugasama þá má lesa umrædda samstarfsyfirlýsingu hér og nánari upplýsingar um verkefnið má finna í frétt á vef Reykjavíkurborgar.