- Kynning fyrir 10. bekkinga
- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Áfangar
- English
Aðfaranótt miðvikudagsins 9. október hélt 28 manna hópur þýskunemenda í Berlínaráfanga sem kenndur er við skólann ásamt kennara áfangans, Björgu Helgu Sigurðardóttur og aðstoðarmanni til Berlínar í náms- og menningarferð. Nemendur höfðu fyrir ferðina lært um sögu og menningu borgarinnar, unnið kynningar um hverfi hennar og þekktustu staði og rifjað upp orðaforða til að geta bjargað sér sem best í heimsborginni.
Hópurinn gisti við Alexanderplatz, í hjarta gömlu Austur-Berlínar. Farið var í bæði göngu- og rútuferð með íslenskum leiðsögumanni sem býr í Berlín auk þess sem kennari og aðstoðarmaður fóru með nemendur í styttri ferðir. Í þessum ferðum voru skoðaðir margir merkir staðir. Má þar nefna Brandenborgarhliðið, Ólympíuleikvanginn, dómkirkjuna, Holocaust- minnismerkið, Potsdamer Platz, East Side Gallery, Treptower-garðinn, Bebelplatz og Humboldt-háskólann við breiðgötuna Unter den Linden. Auk þess var hin sögufræga bygging Reichstag (þinghúsið) heimsótt og Gedenkstätte Berliner Mauer sem er minningarstaður um Berlínarmúrinn og fengu nemendur leiðsögn á báðum þessum stöðum. Einnig heimsóttu nemendur merkan stað að eigin vali og fóru þá á ýmis söfn, upp í sjónvarpsturninn og/eða í dýragarðinn og skrifuðu skýrslu á þýsku um heimsóknina eftir að heim var komið. Margir notuðu einnig tækifærið og versluðu á Ku‘damm, frægustu verslunargötunni í vesturhluta Berlínar.
Komið var heim síðdegis sunnudaginn 13. október eftir mjög vel heppnaða ferð. Eftir að heim var komið hafa nemendur unnið ýmiss konar verkefni í tengslum við ferðina, s.s. skrifað ferðasögu, frásögn um heimsókn á veitingastað, klippt til og sett texta á myndbönd sem tekin voru í Berlín og undirbúið sig fyrir munnlegt próf þar sem segja á frá einum degi og lýsa mynd sem tekin var í ferðinni. Framkoma nemenda var til fyrirmyndar og voru þeir sjálfum sér og skólanum til sóma.