- Kynning fyrir 10. bekkinga
- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Áfangar
- English
Kæru nemendur
Námsmatsdagar hefjast í næstu viku og biðjum við ykkur að skoða vel klukkan hvað prófin ykkar byrja og í hvaða stofum prófið er, sjá hér.
Ef próf er í fleiri en einni byggingu þurfið þið að athuga vel í hvaða byggingu ykkar bekkur á að vera. Nemendur sem hafa skráð sig hjá námsráðgjöfum í sérstofu taka prófin sín í stofu M22.
Próftöfluna er að finna bæði á Innu og á heimasíðu skólans.
Mikilvægt er að þið kynnið ykkur vel prófareglur og prófafyrirkomulag, sjá hér: https://www.kvenno.is/is/nam-kennsla/namsmat-og-namsframvinda/profareglur.
Athugið að ef nemandi verður uppvís að því að nota óleyfileg gögn telst nemandi fallinn á prófinu.
Þegar þið komið í próf þá eigið þið að setja yfirhafnir og annað fremst í prófstofuna. Pennaveski mega ekki vera á borðum. Öll snjalltæki og/eða heyrnartól eru bönnuð. Slökkt skal á símum eða setja á flugstillingu og þeir skildir eftir hjá yfirsetufólki eða hafðir í tösku eða yfirhöfn. Þið eruð vinsamlegast beðin um að yfirgefa bygginguna hljóðlega um leið og þið gangið út úr prófinu svo nemendur sem eru ennþá í prófi verði ekki fyrir truflun.
Veikindi á að tilkynna strax að morgni prófdags (hringja á skrifstofu skólans) og staðfesta síðan með læknisvottorði dagsettu samdægurs. Vottorðinu skal skila á skrifstofu skólans rafrænt á kvenno@kvenno.is.
Sjúkrapróf verða þriðjudaginn 17. desember í stofu N2 og hefjast kl. 9:00.
Hægt er nálgast ýmis gögn og góð ráð frá náms- og starfsráðgjöfum skólans, t.d. skipulagsblöð, góðar aðferðir við tímastjórnun og próftækni, sjá hér: https://www.kvenno.is/is/foreldrar/stodthjonusta/nams-og-starfsradgjof og undir aðstoð í Innu.
Gangi ykkur sem allra best