Ógleymanleg ferð til Parísar

 

Í kringum síðustu mánaðarmót dvöldu 23 nemendur Kvennaskólans ásamt tveimur frönskukennurum í Parísarborg. Ferðin er hluti af svokölluðum Parísaráfanga sem er í boði fyrir frönskunemendur hér við skólann. Í áfanganum fræðast nemendur um heimsborgina París og vinna ýmis verkefni. Menningarferð til Parísar er hápunktur áfangans og dvaldi hópurinn þar að þessu sinni frá 27. september til 1. október og gisti á farfuglaheimili í hjarta borgarinnar, nánar tiltekið í Mýrinni (le Marais) í 4. hverfi. Fyrsta daginn dreif hópurinn sig strax upp í hinn eina og sanna Eiffelturn og naut útsýnisins yfir borgina bæði í sól og regni. Næsta dag fór hópurinn í göngutúr um hverfið sitt, Mýrina og kíkti á sögusafn borgarinnar, Musée Carnavalet. Því næst var haldið yfir í latínuhverfið á vinstri bakkanum þar sem nemendur fóru í ratleik. Þá var haldið í Sigurbogann í fínu veðri og rölt niður breiðgötuna Champs-Elysées.

Á næstu dögum skoðaði hópurinn ýmislegt fleira, t.d. Montmartre hæðina þar sem kirkjan Sacré Coeur trónir á toppnum. Síðasta daginn skoðaði hópurinn borgareyjuna, île de la Cité og sjálfa Notre-Dame áður en hann hélt í Louvresafnið og naut leiðsagnar á frönsku. Þessir dýrmætu dagar voru nýttir til hins ítrasta sem sést best á því að nemendur og kennarar gengu yfirleitt 13-20 kílómetra hvern dag ef marka má snjalltæki hópsins.

Hluti af dagskrá hópsins fólst í því að nemendur fóru saman í smærri hópum í ólíkar áttir og skoðuðu nokkra fyrirfram ákveðna staði. Þar áttu þau að kynna sér staðhætti og viða að sér efni, taka myndir og myndbönd. Þau áttu líka að taka viðtöl á frönsku við fólk á stöðunum svo töluvert reyndi á frönskukunnáttu þeirra. Efnisöflun gekk vel og nemendur sáu og upplifðu ótalmargt nýtt og spennandi sem þau eru að vinna úr nú eftir heimkomu. Sem dæmi um viðfangsefni má nefna Katakombur Parísarborgar, ýmis söfn og garða. Afraksturinn felst í stuttmyndum eða glærusýningum sem eru ekki bara skilaverkefni heldur einnig minningar þeirra um skemmtilega ferð.

Ferðin gekk mjög vel og Parísarborg skartaði sínu fegursta enda var mikið gert fyrir borgina í tilefni af Ólympíuleikunum síðastliðið sumar. Óhætt er að segja að nemendur séu reynslunni ríkari og hafi verið skólanum til sóma.