Úrslitaviðureign Gettu betur á morgun

Liðið að loknum undanúrslitum þegar liðið sigraði lið MR með 29 stigum gegn 24 stigum.
Liðið að loknum undanúrslitum þegar liðið sigraði lið MR með 29 stigum gegn 24 stigum.

Kvennó mætir Verzló í úrslitaviðureign Gettu betur á morgun, föstudaginn 19. mars. Keppnin hefst í Efstaleiti kl. 19:45  en sökum sóttvarnareglna verða einungis 30 manns frá hvorum skóla í sjónvarpssal. Við hvetjum alla til að koma sér vel fyrir í sjónvarpssófanum því þetta verður örugglega bæði spennandi og skemmtileg lokaviðureign. 
Lið Kvennaskólans skipa: Hildur Sigurbergsdóttir, Ari Borg Helgason og Áróra Friðriksdóttir. Lið Verzlunarskólans skipa: Eiríkur Kúld Viktorsson, Gabríel Máni Ómarsson og Sigurbjörg Guðmundsdóttir.